: Kemen Tour rafmagnsborgarhjól

Einstaklega fallegt og vel hannað rafmagnsborgarhjól sem kemur með 85 NM kraftmiklum Shimano mótor og 630 WH batteríi. Hjólið er hannað með öryggi að leiðarljósi, það kemur með innbyggðum ljósum að framan, aftan og til hliðar svo þú sért sýnileg/ur, einnig er falið hólf fyrir airtag svo þú getir fundið hjólið ef því er stolið, að lokum koma festingar fyrir framelock lás svo þú getir læst hjólinu fljótlega. Hjólið kemur með 80 mm fjöðrun að framan, brettum, bögglabera, standara, símafestingu og USB-C tengi til að hlaða síma, einnig er hægt að bæta við dropper sætispípu og körfu að framan. Þetta er draumahjól fyrir þau sem vilja nýta sér rafmagnshjól til að komast á milli staða í stíl

Veldu að vera frjáls!

Veldu að vera frjáls frá morgunumferðinni, stressinu og fáðu þér ferskt loft á leiðinni í vinnuna. Láttu Kemen sjá um allt erfiðið svo þú getir mætt án þess að svitna og taktu svo lengri leiðina heim til að fá skemmtilegan hjólatúr í leiðinni.

Topbar stell

Topbar útgáfan af hjólinu hentar þeim sem vilja stífara og liprara hjól

Midbar stell

Midbar útgáfan af hjólinu hentar þeim sem vilja hjól sem er auðveldara að komast upp á, en sem er stífara og liprara en sambærileg borgarhjól sem eru ekki með stöng.

Shimano EP6 mótor 85NM

Hjólið kemur með léttum og kraftmiklum 85 NM Shimano EP6 mótor sem kemur þér hratt á milli staða

630 Wh batterí

Hjólið kemur með 630 Wh innbyggðu batterí sem ætti að duga í nokkra daga fyrir flest fólk. Hægt er að panta auka 252 Wh utanáliggjandi batterí fyrir þau sem vilja drífa lengra

Stýring í stýri

Þú kveikir á hjólinu, ljósum, sérð batterí stöðuna og stýrir hjálpinni með lítillri fjarstýringu í stýrinu. Hægt er að uppfæra í skjá fyrir þau sem vilja sjá nánari upplýsingar um batterístöðuna og hraða

80 mm fjöðrun

Kemen Tour hjólin koma með 80 mm fjöðrun að framan sem er fullkomið fyrir borgarhjólreiðar

Bretti

Hjólið kemur með snyrtilegum brettum

MIK Bögglaberi fyrir 20kg

Hjólið kemur með MIK bögglabera sem tekur allt að 20 kg, en einnig er hægt að uppfæra í bögglabera sem tekur allt að 30 kg (tilvalið fyrir barnastól). MIK kerfið býður upp á að festa mikinn fjölda af aukahlutum við bögglaberann með fljótlegum hætti t.d. hliðartöskur eða barnastól

Símafesting og USB-C

Hjólið kemur með símafestingu fyrir SP Connect og Quadlock símahulstur, sem er hentugt ef þú vilt nota símann þinn til að sjá hraða og leiðina sem þú ert að fara. Einnig er USB-C hleðsluport til að geta hlaðið símann þinn á ferð

Standari

Innbyggður standari kemur með hjólinu

Bögglaberi að framan

Hægt er að panta hjólið með bögglabera að framan sem tekur allt að 10 kg fyrir þau sem vilja enn meiri burðargetu

Fjöðrun í sætinu

Hjólið er fáanlegt með fjöðrun í sætispípunni til að hámarka þægindin

Dropper sætispípa

Hjólið er fáanlegt með dropper sætispípu sem er frábær þegar maður fer niður krefjandi brekkur, en einnig mjög þæginleg til að komast upp á full lestað hjól og til að deila hjólinu með öðrum

Festingar fyrir hringlás

Hjólið kemur með festipunktum fyrir hringlás fyrir þau sem vilja hafa lás fastan við hjólið og geta læst hjólinu hratt og auðveldlega

Stöðuljós

Hjólið kemur með innbyggðu stöðuljósi í stellinu sem gerir þig sýnilegan frá hliðunum

Ljóskastari að framan

Hjólið kemur með innbyggðum ljós kastara í stýrinu, hægt er að uppfæra hann í enn kröftugra ljós og hafa þá valmöguleika á milli há og lág stillingu

Afturljós

Hjólið kemur með innbyggðu afturljósi á brettinu, sem verður skærara eftir því sem þú bremsar til að láta aðra vita að þú sért að hægja á þér

Stilltu hjólinu fyrir þínar þarfir

Hægt er að velja á milli fjögurra stillinga á stýrinu til að finna bestu stöðuna fyrir þig. Færðu stýrið ofar og nær þér fyrir auking þægindi, eða fjær þér og neðar til að fara hraðar

Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að? Sendu okkur þá línu og við hjálpum þér að finna draumahjólið!

ofsi@ofsi.is