: Oiz fulldempað fjallahjól forpöntun
Létt fulldempað Cross-country (XC) fjallahjól sem kemur með 120 mm fjöðrun að framan og að aftan. Það kemur einnig með demparalæsingu í stýri og dropper sætispípu. Þetta er draumahjól fyrir þau sem vilja létt og hratt hjól til að taka þátt í XC keppnum eða til að hjóla skemmtilega slóða
Fann engar vörur
Notaðu færri flokka eða clear all
Hannað fyrir krefjandi XC keppnir
Hjólið er hannað til að vera virkilega stíft og með öfluga fjöðrun til að vera bæði hratt upp klifrin en líka öruggt niður brekkurnar.
Létt án takmarkana
Hjólið er hannað til að vera fislétt, en samt með fókus á að besta árangur í keppnum en ekki til að reyna að skila sem lægstu tölu á vigtinni.
120 mm fjöðrun
Hjólin koma útbúin 120 mm fjöðrun að framan og að aftan sem er fullkomið fyrir krefjandi XC keppnir. Ef þú vilt aðeins meiri fjöðrun þá er hægt að panta sumar týpur af hjólinu með 130 mm fjöðrun að framan.
Nýr staður fyrir afturdemparann
Afturdemparinn á Oiz hjólinu er kominn á nýjan stað, en þetta var gert til að gera hjólið bæði stífara og léttara.
Innbyggt verkfæri
Hægt er að panta innbyggt verkfæri með hjólinu, svo þú getir alltaf gripið í það hratt og örugglega ef þú sprengir eða lendir í veseni á hjólinu.
Pláss fyrir tvær flöskur
Hönnunin á stellinu býður upp á að hafa tvær flöskur sem getur hentað vel í lengri XCM keppnum.
Squidlock stýring
Flestar útgáfurnar af hjólunum koma með Squidlock stýringu sem gerir þér kleyft að stýra dropper sætispípunni (neðri takki) og velja á milli þriggja stillinga (opnir, stífir, læstir) fyrir fram og aftur demparana á þæginlegan hátt (efri takki).
MyO
OMX stellið býður upp á MyO (My Orbea). Hannaðu draumahjólið þitt í þínum litum þér að kostnaðarlausu!
Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að? Sendu okkur þá línu og við hjálpum þér að finna draumahjólið!
ofsi@ofsi.is