: Terra race malarhjól
Terra Race er malarhjól sérstaklega hannað fyrir keppnir, það er stíft þar sem að það skiptir máli, er í léttari kantinum, er hannað til að lágmarka loftmótstöðu og er hannað til að lágmarka víbring frá minni ójöfnum. Hjólið kemur með 50 mm djúpum gjörðum og tekur allt að 45 mm breið dekk. Terra Race kemur með virkilega flottu stýri þar sem allir kaplar eru þræddir í gegnum sem gerir hjólið einstaklega stílhreint og fallegt. Þetta gæti einnig verið frábært hjól fyrir fólk sem er að leita sér að einu hjóli sem gæti hentað vel fyrir bæði malarhjólreiðar og götuhjólreiðar.
-
TilboðTERRA RACE M20iLTD 2026
Verð 850.757 ISKVerðEiningarverð / fyrir909.900 ISKTilboð 850.757 ISKTilboð -
TilboðTERRA RACE M20LTD 2026
Verð 710.507 ISKVerðEiningarverð / fyrir759.900 ISKTilboð 710.507 ISKTilboð -
TilboðTERRA RACE M31eLTD 1X 2026
Verð 785.307 ISKVerðEiningarverð / fyrir839.900 ISKTilboð 785.307 ISKTilboð -
TilboðTERRA RACE M21eLTD 1X 2026
Verð 925.557 ISKVerðEiningarverð / fyrir989.900 ISKTilboð 925.557 ISKTilboð -
TilboðTERRA RACE M11eLTD 1X 2026
Verð 1.383.707 ISKVerðEiningarverð / fyrir1.479.900 ISKTilboð 1.383.707 ISKTilboð
Viltu fara hratt?
Finndu vindinn blása á andlitið á þér á meðan þú brunar eftir malarvegum á glænýju Terra Race keppnis malarhjóli.
Byggt til að fara hratt
Fyrir hjólara sem að sækjast eftir pallsæti og fela sig ekki í hópnum.
Hámarks afköst
Stíft stell sérstaklega hannað fyrir keppnir og til að skila aflinu þínu í hröðun.
Aðlagaðu hjólinu að þér
Stilltu öll smáatriði að þér, hvort sem að það er rétt uppstillt stell, val á réttum íhlutum eða gjarðir, þú ættir að geta stillt hjólið að þínum þörfum til að hámarka afköst.
Ennþá malarhjól, nema bara hraðskreiðara
Hjólið er hannað til að lágmarka loftmótstöðu, allt frá stýri með innbyggðum stýrisenda og köplum, 50 mm djúpar gjarðir og innbyggða sætisklemmu, allt þetta telur og gerir hjólið enn hraðskreiðara.
Stilltu hjólið að þínum þörfum
Þú getur valið breiðara eða grennra stýri, lengri eða styttri stamma og lengdir af sveifum sem að henta þínum þörfum í pöntunarferlinu.
Terra Race stýri
Terra Race hjólið kemur með rosa flottu stýri sem er hannað til að vera fislétt, með alla kapla þrædda í gegnum stýrið til að lágmarka loftmótstöðu og stíft svo að það sé tilbúið í sprettina. .
Hannað til að draga úr víbringi
Stellið er hannað til að vera styttra þar sem að sætispípan fer niður og hjólið kemur með aðeins lengri sætispípu, þetta lætur sætispípuna sveigja örlítið sem að dregur úr víbringi og skilar sér í meiri þægindi á mölinni.
Hjólið tekur allt að 45 mm breið dekk
Hjólið er hannað til að taka allt að 45 mm breið dekk sem er fullkominn meðalvegur á milli þæginda og hraða í keppnum. .
MyO
Allar Terra Race týpurnar bjóða upp á MyO (My Orbea). Hannaðu draumahjólið þitt í þínum litum þér að kostnaðarlausu!
Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að? Sendu okkur þá línu og við hjálpum þér að finna draumahjólið!
ofsi@ofsi.is