: Ordu þríþrautarhjól forpöntun

Einstaklega flott þríþrautar og tímatöku hjól sem kemur með diskabremsum og öllum köplum földum inn í stelli. Auðvelt er að stilla inn þína stöðu á hjólinu með ótrúlega vel heppnaðri útfærslu á stýri og ættu allir að geta fundið sína fullkomnu stöðu á Orbea Ordu.

Hannað til að lágmarka loftmótstöðu

Öll smáatriði á Ordu þríþrautarhjólinu eru hönnuð til að lágmarka loftmótstöðuna svo þú farir hraðar. Allt frá stelli, sætispípu, gjörðum og stöðu á hjólinu.

Stilltu hjólið að þínum þörfum

Eitt af því mikilvægasta til að vera hraður á hjólinu þínu er að geta stillt það eftir þínum þörfum til að lágmarka loftmótstöðu en á sama tíma reyna að hámarka afl og þægindi.

Hjól sem að þú getur treyst á

Hjólið er hannað til að bregðast vel við þegar að þú ert á fullri ferð.

Létt og stíft

Hjólið er hannað til að vera létt án þess að fórna stífleika og öryggi sem að skilar sér í næmu hjóli með mikillri hröðun og á auðvelt með að viðhalda hraðanum.

Hannað til að lágmarka loftmótstöðu

Mikið hefur verið lagt upp úr því að hanna hjólið og íhluti þess með það í huga að lágmarka loftmótstöðu.

Stilltu hæðina á stýrinu

Hægt er að stilla hæðina og hversu mikið stýrið hallar með auðveldum hætti.

Hægt er að stilla letistýrið með auðveldum hætti

Hægt er að stilla púðana á letistýrinu með því að færa þá í sundur, saman, fram og aftur með auðveldum hætti.

Stilltu hæðina á bremsunum

Hægt er að snúa stýrinu við til að breyta hæðinni á bremsunum um 30mm.

Stilltu hankkinn

Hægt er að stilla hnakkinn töluvert eftir því hvort þú þarft að teygja þig meira eða minna í stýrið.

MyO

Hannaðu draumahjólið þitt í þínum litum þér að kostnaðarlausu!

Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að? Sendu okkur þá línu og við hjálpum þér að finna draumahjólið!

ofsi@ofsi.is