Aldur
2 - 12 ára
Hæð
80 - 149 cm
Gjarðir
12" - 27,5"
Stærðir
5
Kimu 12
Jafnvægishjól fyrir þau allra yngstu. Stellið er lágt, svo að það er auðvelt að setjast á hjólið og setja fæturna niður.
Kimu 16
Byrjar sem jafnvægishjól og breytist í hjól með pedölum þegar barnið er tilbúið. Kemur með vökvadiskabremsum.
Kimu 20
Fyrsta hjólið með gírum. 20" gjarðir, 8 gírar og vökvadiskabremsur gera hvern túr léttan og skemmtilegan.
Kimu 24
Kemur í þremur útgáfum eftir getu og hjólastíl. Fáanlegt með 100 mm loftdempara að framan og dropper sætispípu.
Kimu 27
Fjallahjól á 27,5" gjörðum með 110 mm loftdempara að framan. Kemur í tveimur útgáfum, með 10 eða 12 gírum. Fáanlegt með dropper sætispípu.
Stöðugra
stýri
Gúmmí við gaffalinn heldur aftur af snöggum og kröppum beygjum. Barnið dettur síður og lærir að stýra á eðlilegan hátt.
Léttar
bremsur
Kimu 16 er með vökvadiskabremsum og stuttum bremsuhandföngum sem litlar hendur ná utan um. Það þarf lítið afl til að bremsa.
Lokuð
keðjuhlíf
Keðjan á Kimu 16 er alveg lokuð inni í léttri hlíf. Hún ver keðjuna fyrir óhreinindum og heldur fötum og litlum fingrum frá.
Stórar
gjarðir
Gjarðirnar eru hlutfallslega stórar, líkt og 29" gjarðir á fullorðinshjóli. Hjólið heldur hraðanum betur og rúllar léttar yfir ójöfnur.
Carbon gaffall
og sætispípa
Kimu 20 og 24 eru fáanleg með gaffli og sætispípu úr carbon. Það léttir hjólið og dregur úr titringi frá slóðanum.
Loftdempari
að framan
Kimu 24 er fáanlegt með 100 mm loftdempara að framan og Kimu 27 kemur með 110 mm. Hann gefur meira grip og þægindi þegar slóðarnir verða grófari.
Nafnið
á stellið
Á stellinu er nafnplata þar sem barnið getur merkt sér hjólið og gert það að sínu.
Tvö sett
af hlífum
Skrautlegar hlífar verja stellið fyrir rispum. Annað settið er komið á hjólið og hitt fylgir með til skiptanna.
Límmiðar
í stíl
Með hjólinu fylgja litríkir límmiðar í stíl. Barnið skreytir hjólið eftir eigin höfði og ver stellið í leiðinni.