: Rallon RS fulldempað rafmagnsfjallahjól forpöntun
Orbea Rallon RS er rafmagnsfjallahjóla útgáfa af hinu gríðarlega vinsæla Rallon enduro hjóli, þetta er að mörgu leyti sama hjól nema að það er hannað til að gefa þér náttúrulega aðstoð upp klifrin. Hjólið er fislétt miðað við hefðbundin rafmagnsfjallahjól og er aðeins 1,3 kg þyngra en hefðbundnu Rallon hjólin. Hjólið kemur útbúið litlum og léttum 40 NM kraftmiklum TQ mótor sem er nóg til að gefa þér náttúrulega aðstoða þegar þú þarft á því að halda án þess að taka yfir hjólatúrinn. Það er einnig útbúið 290 WH batteríi sem ætti að skila þér sirka 1200-1800 m af klifri og einnig er hægt að fá 160 WH range extender fyrir þau sem vilja drífa aðeins lengra. Rallon RS kemur með 180 mm fjöðrun að framan og 170 mm að aftan, það er með lágan þyngdarpunkt og virkilega stöðugt í krefjandi aðstæðum.
Fann engar vörur
Notaðu færri flokka eða clear all
Einstakt rafmagnsfjallahjól
Orbea Rallon RS er fyrsta hjólið sem tengir saman batterí, mótor, fjöðrun, dropper sætispípu, rafskipti, allt í gegnum eina fjarstýringu sem lætur alla þessa íhluti vinna saman til að skila snjöllu einstöku hjóli sem hjálpar þér að tækla allra erfiðustu leiðirnar.
Eiginleikar
Í klifrunum þá .
Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að? Sendu okkur þá línu og við hjálpum þér að finna draumahjólið!
ofsi@ofsi.is